Fjölgun starfa og hátt menntunarstig hjá Matís í Skagafirði
Á heimasíðu Matís er fjallað um starfsstöðina á Sauðárkróki en þar er svokölluð Líftæknismiðja staðsett og er lífvirkni hinna ýmsu efna úr íslenskum sjó rannsökuð þar. Það sem er auk þess áhugavert við starfsstöðina er hversu hátt menntunarstig starfsmenn Matís hafa.
Af þeim fimm starfsmönnum sem þar starfa eru þrír með meistaragráðu og tveir með doktorsgráðu. Með slíkri þekkingu er hægt að halda úti margþættri og áhugaverðri starfsemi sem skiptir máli fyrir nærumhverfið og ekki síður fyrir landið í heild, segir á matis.is.
Starfsemi Matís í Líftæknismiðjunni er margþætt. Í fyrsta lagi hefur Matís komið upp sérhæfðri rannsóknastofu á sviði líftækni og lífefna. Í öðru lagi starfrækir Matís tilraunaverksmiðju í vinnslusal Líftæknismiðjunnar, þar sem fyrirtækið Iceprotein ehf. hefur byggt upp starfsemi sína. Að lokum vinnur starfsfólk Matís í Líftæknismiðjunni með fyrirtækjum í Skagafirði og NV-landi að ýmsum umbóta-og hagræðingarverkefnum.
„Með Líftæknismiðjunni hefur skapast rannsóknaraðstaða með tilheyrandi vinnsluaðstöðu þar sem vísindamenn og frumkvöðlar í líftækni geta þróað vörur sínar og vinnsluferla í samvinnu við Matís. Á rannsóknastofu Líftæknismiðjunnar er unnið að mælingu á lífvirkum eiginleikum lífefna úr íslenskri náttúru.“
Sjá nánar HÉR
http://www.youtube.com/watch?v=66TYl0tasF0&feature=plcp&noredirect=1