Fjöllin grá og kuldi í dag

Það er heldur kuldalegt um að litast á Norðurlandi í dag, norðvestan 3-10 og rigning eða súld, og  víða gránaði í fjöll í nótt. Veðurstofan gerir ekki ráð fyrir því að birti að neinu ráði fyrr en á morgun á Norðurlandi vestra og þá einkum í innsveitum en þá gæti hitinn farið í 8 til 13 stig. Það er ekki fyrr en á föstudag sem hitinn gæti farið að kæta landann en þá er jafnvel gert ráð fyrir hita frá 10 til 18 stig, hlýjast hjá Norðlendingum.

Á fimmtudag:
Norðaustlæg átt, 3-8 m/s, en 8-13 um tíma SA-lands. Rigning A-til, en annars skýjað og stöku síðdegisskúrir. Léttir til fyrir norðan og austan um kvöldið. Hiti 8 til 13 stig.

Á föstudag:
Vaxandi suðaustanátt, 10-15 m/s og rigning S- og V-til seinni partinn, en annars hægari og þurrt að kalla. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast N-til.

Á laugardag:
Ákveðin suðlæg átt með rigningu eða skúrum, en úrkomulítið fyrir norðan og austan. Kólnar SV-til.

Á sunnudag:
Breytilegar áttir, víða væta og fremur svalt.

Á mánudag:
Útlit fyrir hægan vind, bjart með köflum og hlýtt veður.

Fleiri fréttir