Fjölmargir í vandræðum á vegum landsins

Margir lentu í vandræðum á vegum landsins í gær.
Margir lentu í vandræðum á vegum landsins í gær.

Björgunarsveitarmenn og Vegagerðarmenn hjálpuðu fjölda vegfarenda í ófærð og illviðri um norðan og vestanvert landið fram á nótt, að því er fram kemur í frétt á Vísi.is.

Vegagerðarmenn fóru fyrir lestum af fólksbílum yfir Holtavörðuheiðina , en ófært varð um Holtavörðuheiði, Þverárfjall og fleiri fjallvegi á norðan- og vestanverðu landinu snemma snemma í gærkvöldi.

Mikil örtröð mun hafa verið á áningastöðum við þjóðvegina, til dæmis í Staðarskála og Hreðavatnsskála. „Þrátt fyrir að fjölmargir hafi lenti í vandræðum á vegunum í gærkvöldi, er fréttastofu ekki kunnugt um nein slys á fólki,“ segir að lokum í frétt á Vísi.is.

Fleiri fréttir