Fjölnet semur við Byggðastofnun

Frá vinstri Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, Sigurður Pálsson, framkvæmdarstjóri Fjölnets, Pétur Ingi Björnsson, stjórnarformaður og tæknistjóri Fjölnets og Magnús Helgason, forstöðumaður Byggðastofnunar. Aðsend mynd.
Frá vinstri Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, Sigurður Pálsson, framkvæmdarstjóri Fjölnets, Pétur Ingi Björnsson, stjórnarformaður og tæknistjóri Fjölnets og Magnús Helgason, forstöðumaður Byggðastofnunar. Aðsend mynd.

Byggðastofnun hefur samið við Fjölnet um hýsingu á umsóknarvef sóknaráætlunar landshluta ásamt ráðgjöf og rekstrarþjónustu sem snýr að kerfinu. Samningurinn kemur í kjölfar verðkönnunar í gegnum Ríkiskaup þar sem Fjölnet var valið. Tilgangurinn með vefnum er að einfalda aðgengi umsækjenda, fulltrúa landshluta og ráðgjafa þeirra.

Byggðastofnun er sérstök stofnun í eigu íslenska ríkisins og heyrir undir yfirstjórn (ráðherra). Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu.

Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.

Fjölnet býður Byggðastofnun velkomna í hóp ánægðra viðskiptavina Fjölnets.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir