Fjör í Bifröst í dag
Í dag verður haldin heljarinnar hátíð því miðstig Árskóla á Sauðárkróki heldur sína árshátíð í Bifröst og verða sýningar kl. 17:00 og 20:00
Það má búast við miklum skemmtilegheitum á sviðinu í Bifröst í dag. Nemendur hafa æft sín atriði undanfarnar vikur en ýmislegt verður í boði foreldrum, öfum og ömmum, frændum og frænkum til skemmtunar.

