Fjórir verða bræðurnir þetta árið gangi spáin eftir

Sagt er að Öskudagur eigi sér 18 bræður en samkvæmt veðurspánni á hann líklega ekki nema 4 þetta árið. Spáir gerir ráð fyrir norðan 8-15 m/s og él. Frost 7 til 15 stig. Töluvert snjóaði í nótt og verða því myndarlegir bylir þegar hvessir en dettur niður þess á milli.

Hvað færð á vegum varðar þá er þæfingur á milli Varmahlíðar og Sauðárkróks, snjór og krapi er á Siglufjarðarvegi og eins í Húnavatnshreppi. Hálka er á öðrum leiðum.

Fleiri fréttir