Fjórir vilja starf slökkviliðsstjóra

Fjórar umsóknir bárust um starf slökkviliðsstjóra Brunavarna A-Hún. en starfið var auglýstl laust til umsóknar í lok síðasta mánaðar og rann umsóknarfrestur út 20. júní síðastliðinn. Meðal verkefna slökkviliðsstjóra eru m.a. rekstur slökkviliðs, menntun og æfingar slökkviliðsmanna og eldvarnareftirlit sveitarfélaganna.

Um er að ræða hlutastarf 2/3 en umsækjanda býðst annað starf á móti hjá Þjónustumiðstöð Blönduósbæjar 1/3. Slökkviliðsstjóri er æðsti yfirmaður slökkviliðsins og stjórnar því á æfingum og í útköllum og starfar hann undir stjórn Brunavarna A-Húnavatnssýslu.

Umsækjendur eru:

Andrés Ingiberg Leifsson

Hilmar Frímannsson

Sigurður Þór Ástráðsson

Sigursteinn Freyr Vigfússon

/Húni.is

Fleiri fréttir