Fjórtán í dreifnámi á Blönduósi

Kennsla er hafin í Dreifnámi A-Hún á Blönduósi. Dreifnámið er byggt upp þannig að nemendur stunda nám í heimabyggð í gegnum fjarfundabúnað frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og fara nokkrum sinnum á misseri í staðlotur til Sauðárkróks, eins og sagt er frá á Húnahorninu.

Nemendur dreifnámsins eru fjórtán talsins, sex stelpur og átta strákar frá Blönduósi, Skagaströnd og úr Húnavatnshreppi. Fyrsta starfsár dreifnámsins verður boðið upp á hefðbundna áfanga fyrsta árs á framhaldsskólastigi og sumir nemendur ljúka einnig öðrum áföngum í fjarnámi.

Með því að bjóða upp á nám að loknum grunnskóla í heimabyggð er stigið mikilvægt skref í byggðaþróun svæðisins og aðstandendur námsleiðarinnar vænta þess að nemendahópurinn auðgi mannlífið og styrki enn frekar menntun á svæðinu.

Dreifnámið er staðsett á Húnabraut 4, 2. hæð. Þar er aðstaða til kennslu, samveru og kaffistofa fyrir nemendur ásamt skrifstofuaðstöðu. Umsjónarmaður Dreifnáms A-Hún er Ásdís Ýr Arnardóttir, grunn- og framhaldsskólakennari.

Fleiri fréttir