Fleiri útköll slökkviliðs er ráð hafið verið gert fyrir
Launakostnaður hjá Brunavörnum Húnaþings eystra var hærri á síðasta ári en gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun en ástæðan var að farið var í fleiri útköll en gert hafði verið ráð fyrir.
Í framhaldinu var ákveðið að fara aftur yfir fjárhagsáætlun ársins 2011 í maí á þessu ári. Á móti hærri launakostnaði á síðasta ári voru tekjur af seldri vöru og þjónustu hærri á síðasta ári en á árinu á undan.
Fyrirhugað hafði verið að kaupa mannflutninga og tækjabifreið fyrir slökkviliðið en þar sem forsendur hafa breyst hefur verið fallið frá þeim hugmyndum í bili.