Flestir brautskráðust af ferðamálabraut Hólaskóla
Brautskráning frá Háskólanum á Hólum fór fram föstudaginn 9. júní sl. í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð. Athöfnin var með hefðbundnum hætti, þar sem fléttað var saman stuttum ávörpum og tónlistaratriðum, auk brautskráninganna sjálfra. Á heimasíðu Háskólans á Hólum segir að fyrst hafi stigið í ræðustól Erla Björk Örnólfsdóttir rektor, en síðan ávarpaði ráðherra ferðamála, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, viðstadda. Deildarstjórar skólans sögðu einnig nokkur orð áður en þeir brautskráðu sína nemendur og veittu auk þess nokkrar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í námi.
Laufey Haraldsdóttir, deildarstjóri Ferðamáladeildar, brautskráði 17 nemendur með diplómu í viðburðastjórnum, einn með diplómu í ferðamálafræði og 19 með BA-gráðu í sömu fræðigrein. Söru Benediktsdóttur hlotnaðist viðurkenning fyrir heildarnámsárangur í BA-námi og Hrafnhildi Grímsdóttur, fyrir góðan árangur í diplómanámi.
Sveinn Ragnarsson, deildarstjóri Hestafræðideildar brautskráði einn nemanda með diplómu og 18 með BS-próf í reiðmennsku og reiðkennslu. Þar þóttu þær Arnhildur Helgadóttir og Sarah Høegh skara fram úr og hlutu báðar viðurkenningu fyrir það.
Bjarni Kristófer Kristjánsson, sem nýlega sneri aftur til starfa sem deildarstjóri eftir nokkurra mánaða rannsóknaleyfi, brautskráði einn með diplómu í fiskeldisfræði og annan með MS í sjávar- og vatnalíffræði.
Á Hólar.is segir að dagskránni hafi lokið með því að Hjördís Garðarsdóttir, BA í ferðamálafræði, flutti ræðu fyrir hönd nýbrautskráðra.
Að þessu sinni annaðist Kammerkór Skagafjarðar tónlistarflutning, undir styrkri stjórn Helgu Rósar Indriðadóttur. Athöfninni stýrði Ingibjörg Sigurðardóttir, lektor við Ferðamáladeild. Að athöfn lokinni bauð skólinn til kaffisamsætis, í umsjón Ferðaþjónustunnar á Hólum.
Meðfylgjandi myndir tók Guðmundur B. Eyþórsson.