Flokksval í fjögur efstu sætin hjá Samfylkingunni
Á kjördæmisþingi Samfylkingarinnar í norðvesturkjördæmi sem haldið var á Blönduósi sl. laugardag var samþykkt að við val á framboðslista í kjördæminu verði viðhaft flokksval þar sem flokksfélagar einir hafi kosningarétt.
Valið verði bindandi í fjögur efstu sæti listans og við uppstillingu verði beitt fléttulista.
Á þinginu lá fyrir ákvörðun um fyrirkomulag vals frambjóðenda á framboðslista Samfylkingarinnar vegna alþingiskosninga vorið 2013, kjör fulltrúa í flokksstjórn Samfylkingarinnar, málefnastarf og undirbúningur kosninganna vorið 2013.