Flugeldamarkaðir Björgunarsveitanna í Húnavatnssýslum

Björgunarsveitin Húnar, Björgunarfélagið Blanda og Björgunarsveitin Strönd verða með flugeldamarkað þar sem allur ágóði flugeldasölunnar rennur til björgunarstarfsins. Sjálfboðaliðar hafa unnið dag og nótt við undirbúning sölunnar enda er flugeldasalan mikilvægasta fjáröflun sveitanna og stendur undir stórum hluta af rekstri þeirra yfir árið, er segir á landsbjorg.is.

 

Björgunarsveitin Húnar verður með flugeldamarkað í Húnabúð á Hvammstanga sem hefst í dag 28. desember til 31. desember.

Flugeldamarkaður Húna verður opinn sem hér segir:

Miðvikudaginn 28. desember kl. 14-17
Fimmtudaginn 29. desember kl. 13-18
Föstudaginn 30. desember kl. 10-22
Gamlársdag 31. desember kl. 9-15:30

 

Brenna og flugeldasýning verður á vegum Björgunarfélagsins Blöndu gamlárskvöld þetta árið sem og fyrri ár. Samkvæmt vefmiðlinu Húna.is er verið að safna styrktaraðilum að flugeldasýningunni svo hún verði glæsilegri en áður. Kveikt verður á brennunni kl. 20:30 og hefst flugeldasýningin skömmu síðar.

Flugeldamarkaður Björgunarfélagsins Blöndu hefst einnig í dag 28. desember og verður til 31. desember að Efstubraut 3.

Flugeldamarkaður Blöndu verður opinn sem hér segir:

Miðvikudaginn 28. desember kl. 12-22
Fimmtudaginn 29. desember kl. 12-22
Föstudaginn 30. desember kl. 12-22
Gamlársdag 31. desember kl. 10-15

 

Flugeldamarkaður Björgunarsveitarinnar Strandar og UMF fer fram að Fjörubraut 8 í húsnæði Nes Listamiðstöðvar. Björgunarsveitarmenn munu svo keyra um Skagabyggð til að selja flugelda föstudaginn 30. desember.

Flugeldamarkaður Strandar verður opinn sem hér segir:

Miðvikudaginn 28. desember kl. 18-22
Fimmtudaginn 29. desember kl. 16-22
Föstudaginn 30. desember kl. 16-22
Gamlársdag 31. desember kl. 11-15

 

Tekið er fram að börn yngri en 16 ára fá ekki afgreiðslu nema í fylgd með fullorðnum og minnt er á notkun flugeldagleraugnanna til að vernda augun.

http://www.youtube.com/watch?v=h3WMv7olUWI

 

 

 


Fleiri fréttir