Flugeldasala björgunarsveitanna
Eins og venja er standa björgunarsveitirnar fyrir flugeldasölu fyrir áramótin sem er í flestum tilfellum þeirra stærsta fjáröflunarleið. Flugeldamarkaðirnir hér um slóðir opna flestir í dag og verða þeir opnir sem hér segir:
Björgunarsveitin Grettir verður með flugeldasölu í húsi björgunarsveitarinnar á Hofsósi (gengið inn að vestan).
- Föstudag 28. des. klukkan 16-21.
- Laugardag 29. des. klukkan 10-22.
- Sunnudag 30. des. klukkan 10-22.
- Mánudag 31. des. klukkan 10-14.
Á Sauðárkróki eru Björgunarsveitin Skagfirðingasveit og Skátafélagið Eilífsbúar með sölu í húsi björgunarsveitarinnar að Borgarröst 1.
- Föstudag 28. des. klukkan 13-22.
- Laugardag 29. des. klukkan 10-22.
- Sunnudag 30. des. klukkan 10-22.
- Mánudag 31. des. klukkan 10-16.
- Sunnudag 6. jan. (þrettándinn) klukkan 15-19.
Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð er með sinn markað í húsi sveitarinnar í Varmahlíð.
- Föstudag 28. des. klukkan 13-22.
- Laugardag 29. des. klukkan 11-22.
- Sunnudag 30. des. klukkan 10-22.
- Mánudag 31. des. klukkan 10-14.
Flugeldasala Björgunarfélagsins Blöndu verður að Hafnarbraut 6 á Blönduósi.
- Föstudag 28. des. klukkan 16-20.
- Laugardag 29. des. klukkan 14-22.
- Sunnudag 30. des. klukkan 12-23.
- Mánudag 31. des. klukkan 10-14.
- Sunnudag 6. jan. (þrettándinn) klukkan 15-18.
Björgunarsveitin Húnar er með flugeldasölu sína í Húnabúð á Hvammstanga.
- Laugardag 29. des. klukkan 10-22.
- Sunnudag 30. des. klukkan 10-22.
- Mánudag 31. des. klukkan 9-16.
Á Skagaströnd verða Björgunarsveitin Strönd og Umf. Fram með flugeldasölu sína í húsnæði Rauða krossins að Oddagötu 4.
- Föstudag 28. des. klukkan 20-22.
- Laugardag 29. des. klukkan 16-22.
- Sunnudag 30. des. klukkan 16-23.
- Mánudag 31. des. klukkan 11-15.