Flugeldasala Björgunarsveitarinnar Strandar

Flugeldasala Björgunarsveitarinnar Strandar er að þessu sinni í fyrrum húsnæði frystihússins Hólanes að norðanverðu (þar sem ekið er upp á Höfðann). Flugeldasalan er ein aðal fjáröflunarleið björgunarsveitarinnar Strandar og U.M.F. Fram.

Opnunartímar verða sem hér segir:

  • Föstudaginn 28. des. kl. 18-22
  • Laugardaginn 29.des. kl. 16-22
  • Sunnudaginn 30.des. kl. 16-22
  • Mánudaginn 31.des. kl. 11-15

Selt verður í Skagabyggð sunnudaginn 30. des.

Vakin er athygli á því að börn og unglingar 16 ára og yngri fá ekki að versla flugelda nema í fylgd með foreldrum eða forráðamönnum og munið ábyrgðin er ykkar.

Fleiri fréttir