Flugeldasölur og gamlársbrennur í Húnavatnssýslum
Brenna og flugeldasýning verða á sínum stað á gamlárskvöld á Blönduósi á vegum Björgunarfélagsins Blöndu. Í Glugganum segir að kveikt verði í brennunni kl. 20:30 og hefst flugeldasýningin skömmu síðar. „Verið er að safna styrktaraðilum að flugeldasýningunni til að hún verði enn glæsilegri en áður,“ segir í auglýsingunni. Flugeldasala er aðal fjáröflun Björgunarsveitanna.
Flugeldamarkaðurinn opnaði í gær og verður opinn fram á gamlársdag. Flugeldamarkaður Björgunarfélagsins Blöndu að Efstubraut 3 verður opinn sem hér segir:
- Þriðjudagurinn 29. desember frá klukkan 14-22.
- Miðvikudagurinn 30. desember frá klukkan 10-22.
- Gamlársdagur 31. desember frá klukkan 10-15.
- Þrettándinn 6. janúar frá klukkan 15-18.
Flugeldasala og áramótabrenna á Hvammstanga
Húnar á Hvammstanga kveikja í áramótabrennunni við Höfða kl. 21:00 á Gamlárskvöld og þar á eftir verður flugeldasýning í boði fyrirtækja í Húnaþingi vestra. Flugeldamarkaður Björgunarsveitarinnar Húna hófst í gær og verður opin á eftirtöldum dögum milli jóla og nýárs í Húnabúð, húsnæði sveitarinnar á Hvammstanga og eru næstu opnunartímar sem hér segir:
- Þriðjudaginn 29. desember 16 -21
- Miðvikudaginn 30. desember 10 -22
- Gamlársdag 31. desember 9-15:30
„Þeir sem kaupa flugelda hjá okkur fyrir meira en 15.000 kr. fara í flugeldapottin sem dregið verður úr kl 14:00 á gamlársdag í Húnabúð og geta því unnið flugelda, tertur o.fl.,“ segir í auglýsingu í Sjónaukanum.
Flugeldasala á Skagaströnd
Flugeldamarkaður Björgunarsveitarinnar Strandar og UMF Fram hófst í gær að Vallarbraut 4 á Skagaströnd og verður opin á eftirtöldum dögum milli jóla og nýárs:
- Þriðjudaginn 29.des. kl. 16-22
- Miðvikudaginn 30.des. kl. 16-22
- Fimmtudaginn 31.des. kl. 10-16
Selt verður í Skagabyggð þriðjudaginn 30. desember.