Flughálka frá Varmahlíð inn Blönduhlíð
Á Norðvesturlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja en flughálka frá Varmahlíð og inn Blönduhlíð. Þæfingsfærð er á milli Hofsóss og Ketiláss en unnið að hreinsun.
Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands gengur í austan 13-18 með slyddu eða snjókomu á Norðurlandi vestra í dag en dregur úr vindi í kvöld. Austan 3-8 og úrkomulítið í nótt og á morgun. Hiti um frostmark í dag, en annars frost 0 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á sunnudag:
Austan og norðaustan 5-10 m/s. Stöku él S-lands, en léttskýjað fyrir norðan. Frost 0 til 5 stig, en víða frostlaust við sjávarsíðuna. Vaxandi norðaustanátt síðdegis með slyddu eða snjókomu suðaustan- og austantil á landinu.
Á mánudag:
Austan og norðaustan 8-13 m/s. Slydda eða snjókoma um landið austanvert, él á Vestfjörðum en úrkomulítið annars staðar. Hiti kringum frostmark, en hiti 1 til 5 stig við S-ströndina.
Á þriðjudag:
Norðaustanátt og dálítil él N- og A-lands, en léttskýjað SV-til á landinu. Heldur kólnandi.
Á miðvikudag:
Hæglætisveður og fremur kalt.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir vaxandi suðaustanátt með snjókomu sunnan- og vestanlands en bjartviðri fyrir norðan. Dregur úr frosti.