Flughálka og krapi á vegum

Á Norðvesturlandi er krapi í Húnavatnsýslum og á Vatnsskarði. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er flughálka á Skagastrandarvegi og frá Sauðárkrók að Hofsós einnig á Útblönduhlíð. Snjóþekja eða krapi og éljagangur er á öðrum leiðum. 

Í veðurkortum Veðurstofu Íslands er suðaustan 10-15 m/s, en fer að lægja síðdegis. Snjókoma og síðar slydda eða rigning með köflum. Hiti 0 til 6 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á fimmtudag:
Hæg sunnanátt og súld eða slydda köflum, en þurrt að kalla N-lands. Gengur í suðaustan 10-15 m/s með rigningu S- og V-lands um kvöldið. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast syðst.

Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Ákveðin austan- og suðaustanátt. Rigning eða slydda, en lengst af þurrt N- og V-lands. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig.

Á mánudag:
Útlit fyrir suðlæga átt með vætu S- og V-til.

Fleiri fréttir