Flughált í Skagafirði

Á Norðurlandi vestra er flughált í Skagafirði og á Siglufjarðarvegi í Ketilás. Þæfingur er á Vatnsskarði og hálka á Þverárfjalli, annars er hálka eða hálkublettir á vegum, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er suðvestan 3-8 m/s og skýjað, en 8-13 og stöku él eftir hádegi, víða vægt frost, segir í spá Veðurstofunnar. Gengur í suðaustan 8-13 með snjókomu, en síðar slyddu eða rigningu á morgun og hlýnar.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:
Suðaustan 8-13 m/s og slydda, en síðar rigning S- og V-lands, en annars þurrt að kalla. Víða vægt frost í fyrstu, en hiti 1 til 6 stig S- og V-til seinni partinn.

Á laugardag:
Suðlæg átt, 10-15 m/s og víða vætusamt, en úrkomulítið á N-landi. Hiti 2 til 7 stig.

Á sunnudag:
Suðaustlæg átt og rigning SA-lands og stöku él SV-til, en annars bjartviðri. Kólnandi veður.

Á mánudag og þriðjudag:
Austlæg átt og víða dálítil él, en bjartviðri NV-til. Fremur svalt í veðri.

Á miðvikudag:
Útlit fyrir austanátt með snjókomu eða slyddu S-til. Áfram fremur svalt.

 

Fleiri fréttir