Flughált í Skagafirði og ömurlegt ferðaveður

Samkvæmt Ferðaupplýsingum Vegagerðarinnar er flughált á flestum vegum í Skagafirði og raunar bálhvasst og blautt þannig að ferðalangar ættu að fara að öllu með gát. Þá er Öxnadalsheiði ófær og brjálað veður og þæfiingur á Þverárfjalli.

Ástandið er skaplegra í Húnavatnssýslum en engu að síður hálkublettir víða á þjóðvegi 1 og rétt eins og í Skagafirði er hvassviðri. Flughált er á veginum milli Skagastrandar og Blönduóss.

Ferðir með Strætó norður og að norðan falla niður nú fyrir hádegi í það minnsta vegna óveðurs undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi.

Spá Veðurstofunnar fyrir Strandir og Norðurland vestra frá því snemma í morgun er á þessa leið: Norðaustan 15-25 m/s og slydda, en sums staðar snjókoma inn til landsins. Hægari og úrkomuminna um tíma síðdegis. Norðaustan 13-20 í kvöld og á morgun og rigning eða slydda. Hiti 0 til 3 stig.

Þeir sem vilja fylgjast með færð á vegum og ferðum hjá Strætó geta reynt fyrir sér á þessum hlekkjum>

Fleiri fréttir