Flugukastskeppni við Laxasetrið

Laxasetur Íslands tekur þátt í Húnavöku 2012 með því að blása til flugukastkeppni á laugardag kl 16.15 við laxasetrið. Keppnin er ætluð fyrir 12 ára og eldri og verða skemmtileg verðlaun í boði. „Veiðiverkfæri" verða til staðar svo einungis þarf bara að mæta á staðinn til að taka þátt.

Á sunnudaginn verðu alvöru vöfflusunnudagur en þá verða á boðstólnum vöfflur með rjóma og sultu og heitt á könnunni. Laxasetur Íslands er opið frá kl 10-18.

Fleiri fréttir