FNV á Íslandsmóti iðnnema
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
10.03.2014
kl. 11.40
Íslandsmóti iðnnema lauk laugardaginn 8. mars og var Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra með veglegan kynningarbás á sýningunni. Samkvæmt Facebook-síðu skólans gafst gestum kostur á að svara nokkrum spurningum um skólann út frá kynningarefni sem þar var á boðstólum.
„Dregið var úr réttum lausnum og reyndist sá heppni vera Hildur Arnardóttir. Daníel Logi Þorsteinsson, nemandi við FNV, sótti hana heim og afhenti henni vinninginn sem var spjaldtölva af gerðinni iPad Mini,“ segir á síðunni.