FNV fær góða gjöf

Vélstjórnardeild Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra fékk í vor ljósavél úr MS Selfossi að gjöf. Vélin er átta strokka fjórgengisvél af gerðinni MTU og með henni kom 740 KWA rafall.

„Síðustu daga hefur verið unnið að því að koma hjólabúnaði undir vélina til þess að koma henni inn í skólann og auðvelda umgengni. Vélin kemur til með að nýtast í vélstjórnar-kennslu skólans, einnig er fyrir hugað samstarf við Fjölbrautaskóla Suðurnesja (FSS) og Framhaldsskóla í Vestmannaeyjum (FÍV) um gerð námsefnis og verkefna í sambandi við MTU vélarnar,“ segir á heimasíðu FNV.

Það var Framtak-Blossi ehf. sem kom því í til leiðar að skólinn eignaðist þessa vél og færir Fjölbrautarskólinn starfsmönnum Framtaks bestu þakkir fyrir.

Fleiri fréttir