FNV í NordPlus verkefni um heilbrigðan lífstíl-Myndir

Síðustu vikuna í október dvöldu nokkrir nemendur og kennarar frá Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum á Sauðárkróki og tóku ásamt kollegum sínum við FNV þátt í NordPlus verkefni sem ber yfirskriftina „Heilbrigður lífstíll.“ Er þetta ein af sex vinnulotum verkefnisins en þær eru ein í hverju landi þar sem einn kennari ásamt tveimur nemendum frá hverju landi fer í vettvangsferð til hinna landanna.

Fleiri nemendur frá FNV taka þó þátt í vinnulotunni á Sauðárkróki. Auk þeirra eru þátttakendur frá Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi og Lettlandi. Að sögn kennara sem halda utan um verkefnið hjá FNV komst íslenski hópurinn ekki til Noregs, en fyrsta vinnulotan var þar snemma á önninni. Fyrir hverja vinnulotu eru gerðar veggmyndir og einnig settir saman spurningalistar sem tengjast þema hverrar lotu.

Í vinnulotunni á Sauðárkróki var áherslunni beint að sundi, og þá sérstaklega útisundi, og hestamennsku, en hvort tveggja er einkennandi fyrir Skagafjörð og Ísland. Meðal dagskrárliða var fyrirlestur sem Sigurjón Þórðarson heilbrigðisfulltrúi og sundgarpur flutti fyrir hópinn.

Þegar Feyki bar að garði hafði nemendunum verið skipt í nokkra hópa sem hver um sig átti að gera þriggja mínútna stuttmynd sem fjallaði á einhvern hátt um heilsu. Í hópunum var blandað saman mismunandi þjóðernum og voru þau að ljúka hugarflugsvinnu og voru í þann mund að fara að hlýða á leiðbeiningar frá Árna Gunnarssyni um myndatöku og tækniatriði. 

.

 

Fleiri fréttir