FNV settur næstkomandi mánudag - Innritun í fjarnám í fullum gangi
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra verður settur á sal Bóknámshúss skólans mánudaginn 22. ágúst kl. 18:00. Á vef FNV kemur fram að kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 23. ágúst kl. 08:00. Þá opnar heimavist skólans kl. 13:00 nk. mánudag. „Foreldrar nýnema eru hvattir til að mæta með börnum sínum. Aðalfundur foreldrafélags skólans verður haldinn að lokinni skólasetningu,“ segir á vefnum.
Innritun í fjarnám stendur yfir og lýkur sunnudaginn 25. ágúst. Innritun fer fram á heimasíðu skólans www.fnv.is eða á slóðinni: https://www.inna.is/innritun/.
Hægt er að sjá framboð áfanga á heimsíðu skólans undir hlekknum Áfangar í boði.