FNV skoðar samstarf við Háskólann í Skövde

Verið er að skoða möguleikann á samstarfi á milli Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og tölvunar- og verkfræðideildar Háskólans í Skövde í Svíþjóð. Málið var rætt á fundi Atvinnu, menningar-, og kynningarnefndar Svf. Skagafjarðar 2. maí sl. og fagnaði nefndin hugmyndinni og lýsti yfir vilja til samstarfs við skólann, Hátæknisetur Íslands og fleiri aðila um verkefnið.

„Við ætlum að fara í undirbúningsvinnu með þetta og sjá hvernig þetta gæti litið út. Ef skólinn og skólanefnd telja verkefnið fýsilegt eftir þá vinnu, munum við í framhaldinu kynna það fyrir menntamálaráðuneytinu, en þar höfum við notið mikils velvilja við þróun nýrra námsleiða við skólann. Sú forathugun sem stefnt er að yrði fyrsta skrefið,“ segir Bjarni Jónsson, formaður nefndarinnar og formaður skólanefndar FNV, í nýjasta tölublaði við Feykis.

Atvinnunefndin samþykkti að leggja allt að eina milljón króna til skoðunar á slíku tilraunaverkefni. Ef þessar hugmyndir ganga eftir yrði um eins árs nám að ræða og í kjölfarið gætu nemendur lokið BSc námi við Háskólann í Skövde, eða aðra háskóla, á tveimur árum í stað þriggja.

Nánar er fjallað um málið í Feyki sem kom út í dag.

Fleiri fréttir