Fóðurblandan með nýja heimasíðu
Ný og endurbætt heimasíða Fóðurblöndunnar er nú komin í loftið en samkvæmt tilkynningu frá henni verður aukin áhersla lögð á netverslun á nýju síðunni og kappkostað að veita sem bestar upplýsingar um þær fjöldamörgu vörur til búrekstrar sem Fóðurblandan hefur á boðstólnum.
Um 1.000 vörur hafa nú þegar verið settar inn í netverslunina sem hægt er að panta á þægilegan hátt og fá sent til sín hvert á land sem er.
„Með nýju vefsíðunni er komið til móts við þá viðskiptavini sem kjósa að sinna viðskiptum sínum í auknum mæli á Netinu. Þetta er liður í að auka þjónustu fyrirtækisins,“ segir jafnframt í orðsendingu Fóðurblöndunnar.
Vefslóðinn er www.fodur.is