Fóðurlausnir fyrir kelfdar kýr og ófædda kálfa
Fóðurblandan hefur sett á markað nýjan geldstöðustamp og kurl , LIFELINE – Líflína, sem er í 22,5 kg fötu og kurlið í 20 kg pokum. Góð og hagkvæm lausn við bætiefnagjöf geldstöðunnar eins og segir í tilkynningu frá Fóðurblöndunni.
Í geldstöðunni er kýrin að undirbúa sig fyrir mjaltaskeiðið ásamt því að kálfurinn er að þroskast. Fylgjan og vömbin eru að stækka og legvatnið eykst. Rétt fóðrun á geldstöðunni dregur m.a úr efnaskiptasjúkdómum, doða og súrdoða.
LIFELINE inniheldur m.a Manan fjölsykrung sem er langkeðja kolvetni unnið úr frumveggjum gersveppa sem styrkir ónæmiskerfið til muna ásamt auðugu magni af seleni og E vítamíni. Inniheldur einnig mjólkursykur sem er ekki bara góður orkugjafi heldur eykur hann á vambarstarfsemina vegna framleiðslu á örverupróteinum. Inniheldur húðað sink sem styrkir heilbrigði júgursins og hornhimnu klaufarinnar. Einnig eru 3 gerðir af kopar sem vernda fyrir neikvæðum áhrifum af járni, molydenum og brennisteini.
Rétt hlutföll af vítamínum og steinefnum í LIFELINE jafnar út skort á efnum í grasi og heyi og eykur líkurnar á að kýrin komist vel frá burði og eigi lífvænlegan kálf.