Fólk hvatt til að aðstoða við björgun á Öxnadalsheiði
Bændur í Akrahreppi í Skagafirði ásamt sjálfboðaliðum höfðu í nógu að snúast á Öxnadalsheiði í gær er þeir komu kindum til bjargar sem enga björg gátu sér veitt í fannferginu. Mikið af fé er enn á svæðinu enda göngur ekki áætlaðar fyrr en um næstu helgi. Troðnar voru slóðir í snjóinn svo hægt væri að koma fénu niður á veg þar sem það var rekið áleiðis af heiðinni. Í Bakkaselsbrekkunni var fé rekið á kerrur og keyrt niður að gangnamannakofanum.
Á heiðinni er mikill og þungur snjór sem er erfiður yfirferðar og eru kindurnar pikkfastar í snjónum ef þær hafa ekki troðna slóð til að fara eftir.
Áætlað er að halda áfram björgun í dag og hefur fólk verið hvatt til að mæta á svæðið til að aðstoða. Þannig var sett fram áskorun frá Þorsteini Broddasyni á Facebook að útivistarfólk tæki sig saman og kæmi til aðstoðar.
Að sögn Kristínar Höllu Bergsdóttur í Grænumýri er öll aðstoð vel þegin og segir hún bændur vera þakkláta fyrir stuðninginn hvort sem það eru sjálfboðaliðar, hjálparsveitamenn eða aðrir sem vinna verkið. Einnig biðja bændur vegfarendur um að taka tillit til aðstæðna þegar ekið er um heiðina.
Áætlað er að hittast við Gangnamannakofann Heiðarland í Norðurárdal kl. 9 en einnig er hægt að bætast í hópinn seinna ef það hentar fólki betur. Þeir sem ætla sér að mæta þurfa að vera búnir til að vaða snjóinn upp að brjóstum þar sem miklir skorningar og djúpur snjór er til staðar að sögn Þorsteins Broddasonar.