Fólki gæti verið synjað um innritun í flug
Utanríkisráðuneytið hefur sett á vefsíðu sína mikilvægar upplýsingar til Íslendinga sem eru á ferðalagi erlendis eða dveljast þar tímabundið og eiga rétt á heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Ef tvö af eftirfarandi atriðum eiga við þig mæla íslensk stjórnvöld með því að þú íhugir heimferð til Íslands:
• Ef þú ert eldri en 60 ára
• Ef þú ert með undirliggjandi sjúkdóm
• Ef þú ert fjarri vinum og fjölskyldu
• Ef þú átt ekki rétt á heilbrigðisþjónustu í landinu þar sem þú dvelst eða heilbrigðiskerfið þar annar ekki álaginu.
Sérstök athygli er vakin á á því að fólk sem sýnir sjúkdómseinkenni gæti átt á hættu að vera synjað um innritun í flug og því er óráðlegt að bíða of lengi.
Sóttvarnalæknir hefur meðal annars skilgreint Spán sem svæði með mikla smitáhættu og búast má við að álag verði talsvert á heilbrigðiskerfið þar í landi. Íslendingar sem koma frá Spáni skulu fara í sóttkví í fjórtán daga eftir heimkomu. Þetta tekur til allra hluta Spánar, þ.m.t. Kanaríeyja (Gran Canaria ,Tenerife og aðrar eyjar).
Hægt er að hafa samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins með skilaboðum á Facebook, með tölvupósti á hjalp@utn.is eða í neyðarsíma borgaraþjónustu +354 545-0-112 sem er opinn allan sólarhringinn.