Forgangsrétti til fjörutíu ára mótmælt
Félagsfundur Dögunar – samtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði – mótmælir harðlega frumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu og krefst þess að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíðarskipan fiskveiðistjórnunarkerfisins. Frumvarpið tryggir núverandi handhöfum aflaheimilda forgangsrétt að auðlindinni til 40 ára.
-Hvorki er að sjá að frumvarpið sé í samræmi við þau loforð sem þingmenn ríkisstjórnarflokkanna gáfu kjósendum, né þau réttlætis- og sanngirnissjónarmið sem getið er um í stjórnarsáttmála sömu flokka. Ekki svarar það heldur gagnrýni Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna á óréttmæti og ójafnræði kvótakerfisins, miðað við kynningu á frumvarpinu 26.03.2012, segir í tilkynningu frá Dögun en einnig ályktaði félagsfundur Dögunar að allur fiskur skuli seldur á fiskmarkaði. Ekkert er um slíkt í frumvarpinu að þeirra mati.