Fornleifarannsóknir hefjast á Þingeyrum

Þingeyrarkirkja
Þingeyrarkirkja

Greint er frá því á huni.is í dag að á Þingeyrarklaustri í A-Húnavatnssýslu séu hafnar fræðilegar rannsóknir er fara fram undir heitinu Þingeyrarverkefnið. Verkefnið er þríþætt og miðar að uppgreftri minja er tengjast klaustrinu, greiningu gróðurfars á miðöldum í næsta nágrenni þess og athugun á handritamenningu miðalda.

Í byrjun júlí 2016 verður hópur fornleifafræðinga undir forystu  dr. Steinunnar Kristjánsdóttur, prófessors í fornleifafræði, við rannsóknir á Þingeyrum.

Minjastofnun Íslands veitir leyfi til fornleifarannsóknanna og er náið samstarf við hana um framvindu þeirra.

Efnt verður til kynningar á fornleifaþætti Þingeyrarverkefnisins í Klausturstofunni við kirkjuna á Þingeyrum þriðjudaginn 5. júlí kl. 16.00 og er kynningarfundurinn öllum opinn.

Fleiri fréttir