Fornt og framandi handbragð kennt í gamla pósthúsinu
Í næsta mánuði verður Vicki O´Shea með tvenn námskeið á vegum Farskólans - miðstövar símenntunnar á Norðurlandi vestra. Námskeiðin eru annars vegar í einþrykki (e. Monoprint) og hins vegar í japönsku bókbandi.
Vicki hefur talsverða reynslu af myndlistarkennslu þar sem hún starfaði við Curtin Háskóla í Ástralíu áður en hún kom hingað til Íslands. Hún lagði stund á myndlist í sama skóla og fékk háskólagráðu sína þaðan. Í Curtin háskóla kenndi hún m.a. listasögu, teikningu og þrykk. Þar kenndi hún jafnframt nemum í kennaranámi myndlist og um tíma hafði hún umsjón með listnámi fyrir fanga. Í sumar bauð hún krökkum á Sauðárkróki upp á námskeið í þrykki og japönsku bókbandi, á vegum SumarTíms.
Vicki kemur til með að halda námskeiðin í gamla pósthúsinu á Kirkjutorgi en hún keypti það húsnæði í upphafi ársins. Hún hefur verið að koma sér upp vinnustofu í kjallaranum og flutt þangað ýmis tæki og tól frá Ástralíu, sem hún notar við listsköpun sína.
Einfalt og byrjendavænt listform
Prentun og vinna með blek er fyrra námskeiðið sem boðið er upp á og verður það haldið þann 5. nóvember nk. Þá ætlar Vicki að leiðbeina þáttakendum við gerð svokallaðs einþrykks en tæknina við þrykk má rekja allt aftur til 17. aldar, þar sem m.a. listamennirnir Rembrandt og Degas gerðu tilraunir með aðferðina. Til eru margar gerðir af þrykki en einþrykk er í raun sú einfaldasta og byrjendavænasta. Þá er litur borinn á plötu sem getur verið úr ýmiskonar efniviði, t.d. málmi eða tré. Mynd eða áferð er teiknuð á og pappírinn svo lagður yfir og þrýst á með þar til gerðri pressu eða einungis með höndunum. „Þessi þrykkaðferð er ekki eins tímafrek og aðrar aðferðir þar sem oft að bíða lengi á milli atriða. Einnig er það ekki eins mikið mál ef gerð eru mistök en þau geta jafnvel gefið verkinu meira gildi,“ útskýrði Vicki og bætti við: „Mér finnst æðislegt að vinna með þrykkmyndir. Ég nýt þess að kúpla mig úr amstri dagsins, slaka á og gleyma mér í ferlinu.“
Ævafornt handbragð
Seinna námskeiðið sem Vicki verður með er í japönsku bókbandi. Námskeiðið verður haldið helgina 12.-13. nóvember nk. og er samskonar námskeið og hún hélt fyrir krakkana í SumarTím, en þó stærra í sníðum. Þá verður þáttakendum kennd hin forna list að stinga bókband (e. Stab binding) sem á rætur sínar að rekja til Japans. Farið verður í gegnum öll þrep framleiðslunnar, byrjað verður á að útbúa og skreyta pappírinn sem kemur til með að prýða kápuna fyrri daginn og hafist handa við bókbandið daginn eftir.
Allur efniviður og námsgögn eru innifalin í námskeiðsverðinu. „Það getur stundum verið erfitt að verða sér út um hráefni til þessara listforma. Ég hef helst getað nálgast það sem mig hefur vantað hjá Hvítlist en ekki allt. Því mun ég leggja áherslu á að hafa allt einfalt í námskeiðunum og að notast við þau hráefni sem eru aðgengileg hér á landi,“ sagði Vicki.
Nánari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu Farskólans og þar er jafnframt hægt að skrá sig á námskeiðin.