Forsetahjón heimsóttu sauðfjárbændur og skóla
Forseti Íslands Ólafur Ragnar og frú Dorrit heimsóttu Norðurland í upphafi viku og ræddu við sauðfjárbændur í Þingeyjarsýslu, Skagafirði og Húnaþingi sem glímt hafa við afleiðingar veðuráhlaupsins í vetrarbyrjun og háð hafa harða baráttu við að ná fé úr fönn. Tilgangurinn var að sýna þeim samstöðu vegna hamfaranna og hófst ferðin á að sækja styrktartónleika á Akureyri á sunnudag.
Þaðan var farið til Húsavíkur og í Þingeyjarsýslur þar sem fundað var með stjórnendum björgunaraðgerða en þau hjón áttu einnig stund með þingeyskum bændum. Á þriðjudaginn var haldið í Skagafjörðinn og bændur á Brúnastöðum í Fljótunum heimsóttir áður en farið var í Grunnskólann á Sólgörðum. Þar fengu gestirnir fræðslu um starfið í hinum litla sveitarskóla, ræddu við nemendur og kennara og hlýddu á dagskrá um sögu skólans.
Ein af stelpunum. Dorrit sat á fremsta bekk og gaf Ólafi vink ef henni þótti ræðan eða svörin sem hann gaf nemendum taka of langan tíma.
Þá var haldið á Sauðárkrók og heilsað upp á nemendur og starfsfólk Fjölbrautaskólans áður en haldið var í Húnaþing þar sem bændur á Stóru-Giljá í Húnaþingi voru sóttir heim en þeir misstu á annað hundrað fjár í kjölfar óveðursins í september.