Fótboltaleikir helgarinnar
Næsti leikur sameiginlegs liðs Kormáks og Hvatar í meistaraflokki karla í knattspyrnu fer fram á Blönduósvelli í kvöld, föstudagskvöldið 19. júlí, og hefst leikurinn kl. 20:00. Þar tekur liðið á móti liði KB. Liðin hafa áður mæst en það var 2. júní á Leiknisvellinum og enduðu leikar með 1-1 jafntefli, þar sem Ingvi Rafn Ingvarsson skoraði mark Kormáks/Hvatar.
Næsti leikur hjá meistaraflokki karla í Tindastól fer fram á Sauðárkróksvelli á morgun, laugardaginn 20. júlí þegar Leiknir Reykjavík mætir á svæðið. Leikurinn hefst kl. 16:30.
Næsti leikur hjá meistaraflokki kvenna í Tindastól fer fram á sunnudaginn, 21. júlí nk., en þá mæta stelpurnar Víkingi Ólafsvík á Sauðárkróksvelli. Leiknum hefur verið seinkað um þrjá tíma vegna frjálsíþróttamóts sem fram fer á Sauðárkróki um helgina og hefst því kl. 17:00. Á leiknum munu stelpurnar draga út heppinn vinningshafa í happdrættinu sem þær standa nú fyrir, hægt er að nálgast miða hjá leikmönnum liðsins og taka þátt í happdrættinu, en miðinn kostar aðeins 1500 kr.