Fræðsla fyrir konur á landsbyggðinni

Vinnumálastofnun hefur fengið styrk upp á 40 milljónir úr Erasmus áætlun Evrópusambandsins til að vinna að verkefni sem kallast FREE – Female Rural Enterprise Empowerment. Markmiðið með verkefninu er að efla konur og aðstoða þær við að verða hæfari í að stofna og/eða reka sín fyrirtæki og að efla tengslanet þeirra.

„Verkefnið hefur það markmið að bjóða frumkvöðlakonum á landsbyggðinni að byggja upp hæfni og færni í viðskiptum og til að auka tengslanet sitt, bæði staðbundið en einnig í Evrópu. Námsframboð í dreifðum byggðum eru oft af skornum skammti og eru kostnaðarsöm fyrir þátttakendur.  Þannig á verkefnið að auka aðgengi að hagnýtu námi fyrir þennan hóp.

Boðið verður upp á fræðslu í viðskiptatengdum þáttum en einnig í að byggja upp persónulega færni með því að bjóða upp á þátttöku í þjálfunarhringjum (Enterprise circles).  Nýjar leiðir verða nýttar til að ná til þátttakenda sem búa á afskekktum stöðum til að tryggja aðgengi þeirra en einnig að þróa tengslanet kvenna þar sem þær geta stutt hvor aðra og lært af hvor annarri,“ segir á vef Vinnumálastofnunar.

Námsleiðin verður í boði á ákveðnum svæðum í fimm löndum sem hafa orðið verst úti hvað varðar fólksflótta en á Íslandi verður verkefnið í boði á Vestfjörðum, Austfjörðum og á Norðurlandi vestra.

Samstarfsaðilar eru sjö talsins og eru eftirfarandi;

  • Vinnumálastofnun - Íslandi
  • Byggðastofnun – Íslandi
  • Inova ráðgjafaþjónusta– Bretlandi
  • CESI – jafnréttisstofnun í Króatíu
  • Sandanski atvinnuþróunarfélag– Búlgaríu
  • Kaunas atvinnuþróunarfélag - Litháen
  • Wire (Harpers Adams háskólinn) – tengslanet kvenna – Bretlandi

Stefnt er að því að verkefnið hefjist þann 1. september næstkomandi og mun fyrsti verkþátturinn vera rannsókn og skoðun á stöðu frumkvöðlakvenna á landsbyggðinni.

Verkefnastjóri verkefnisins er Ásdís Guðmundsdóttir, starfsmaður Vinnumálastofnunar

Fleiri fréttir