Fræðslu og uppeldismálin hækka mest í Húnavatnshreppi

Í endurskoðaðri fjárhagsáætlun Húnavatnshrepps fyrir árið 2011 kemur fram að ýmsir liðir hafa hækkað frá fyrri áætlun og á síðasta hreppsnefndarfundi gerði sveitarstjóri grein fyrir þeim breytingum sem gerðar hafa verið á henni. Samkvæmt endurskoðari fjárhagsáætlun er áætlað að rekstur samstæðu verði neikvæður um 18,4 millj. kr.

 

Fræðslu og uppeldismálin er sá liður sem hækka mest eða um rúmar 7 millj. kr. og gert er ráð fyrir fjárfestingar hækki um rúmar 9 millj. kr. frá fyrri áætlun. Hreppsnefnd samþykkti samhljóða að sækja um lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að upphæð 25. millj. kr. vegna framkvæmda ársins 2011.

 

Fulltrúar A-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar A-lista minna á bókun við afgreiðslu fjárhagsáætlunar ársins 2011 þar sem lagt var til að fulltrúar beggja lista færu dýpra ofan í alla kostnaðarliði fjárhagsáætlunarinnar. Þeirri leið var hafnað af meirihlutanum á þeirri forsendu að endurskoðun færi fram í aprílmánuði. Sú endurskoðun hefur ekki farið fram fyrr en nú og ljóst er, svo sem fram kemur í endurskoðaðri fjárhagsáætlun ársins 2011, að rekstur sveitarfélagsins hefur farið verulega úr böndunum. Það er augljóst að nauðsynlegt hefði verið að fara ýtarlega yfir alla kostnaðarliði og gæta aukins aðhalds í rekstri sveitarfélagsins. Fulltrúar A-lista sitja því hjá við afgreiðslu á endurskoðaðri fjárhagsáætlun fyrir árið 2011.

 

Fulltrúar E-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:

Eins og komið hefur fram á hreppsnefndarfundum fyrr á árinu lágu ekki fyrir nægjanlegar upplýsingar í apríl til þess að ástæða væri til að endurskoða fjárhagsáætlun ársins. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011 lá fyrir mikil tekjuskerðing frá Jöfnunarsjóði og því var stefnt að verulegri hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins. Þær aðgerðir sem hafnar eru til hagræðingar skila sér ekki að fullu þetta árið.

Fleiri fréttir