Fræðsluerindi um lífríki linda
Á morgun, fimmtudaginn 29. mars mun Bjarni K. Kristjánsson flytja fræðsluerindi um lífríki linda. Erindið verður flutt í Farskólanum á Sauðárkróki, en verður varpað sem fjarfundi, til Reykjavíkur, Reykjanesbæjar, Hvanneyrar, Stykkishólms, Bolungarvíkur, Ísafjarðar, Hólmavíkur, Húsavíkur, Þórshafnar, Egilsstaða, Neskaupstaðar, Hafnar, Vestmannaeyja og Selfoss.
Bjarni hefur stundað rannsóknir á líffræðilegri fjölbreytni en í rannsóknum sínum hefur hann reynt að meta hvernig vistfræðilegir þættir geta haft áhrif á þróun og mótun líffræðilegra fjölbreytni, bæði í tengslum við þróun tegunda sem og við mótun samfélagsgerða.