Fræðslufundir Ferðamálasamtaka Norðurlands vestra

Ferðamálasamtök Norðurlands vestra boða til námskeiðs í tveimur hlutum, fimmtudagana 20. og 27 febrúar. Námskeiðið hefst kl. 13:00 báða dagana með súpu.

Fyrra námskeiði verður haldið að Gauksmýri þann 20. febrúar og stendur frá 13 til 17. Ber það yfirskriftina „Stjórnun og samskipti.“ Markmiðið er að efla samskiptaleikni stjórnenda við samstarfsaðila í samskiptum og viðskiptum og við samstarfsfólk á vinnustað og við stjórnun starfsfólks. Leiðbeinandi er Steinunn Stefánsdóttir frá Starfsleikni og nánari upplýsingar er að finna á starfsleikni.is.

Seinna námskeiðið verður haldið á Pottinum á Blönduósi þann 27. febrúar og stendur það frá 13-17. Það ber yfirskriftina „Markaðssetning á netinu.“ Fjallað verður um vörumerkjastjórnun, tölvupóst, tengiliði, hönnun skilaboða, árangursmælingu, samfélagsmiðlana eins og facebook og tvitter sem markaðstól, vefauglýsingar og stafræna miðla, leitarvélabestun og greiningu á vefumferð. Leiðbeinendur eru Inga Björgvinsdóttir frá Prómennt og Unnar Bergþórsson frá Pipa/Travel. Nánari upplýsingar er að finna á promennt.is og pipar.is.

Skráningar þurfa að berast fyrir 14. Febrúar til Sigríðar Hjlatadóttur formanns samtakanna. Námskeiðsgjald er krónur 9000 og greiðist við skráningu.

Fleiri fréttir