Framboðslisti framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi samþykktur

Á auka kjördæmisþingi framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi að Reykjum í Hrútafirði í dag, 24. nóvember 2012, var tillaga kjörnefndar að framboðslista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningar 2013 samþykktur.

„Þetta er glæsilegur framboðslisti og mikill hugur í framsóknarmönnum að vinna vel fyrir kosningarnar í vor til að ná sem allra bestum árangri,“ segir í fréttatilkynningu frá Framsóknarflokknum.

Framboðslisti Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi við alþingiskosningar 2013:

1. Gunnar Bragi Sveinsson, alþingismaður, Sauðárkróki

2. Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður og bóndi, Lambeyrum

3. Elsa Lára Arnardóttir, kennari og varabæjarfulltrúi, Akranesi

4. Jóhanna M. Sigmundsdóttir, búfræðingur og nemi, Látrum Mjóafirði

5. Sigurður Páll Jónsson, útgerðarmaður, Stykkishólmi

6. Anna María Elíasdóttir, fulltrúi, Hvammstanga

7. Jón Árnason, skipstjóri, Patreksfirði

8. Halldór Logi Friðgeirsson, skipstjóri, Drangsnesi

9. Jenný Lind Egilsdóttir, snyrtifræðingur og varabæjarfulltrúi , Borgarnesi

10. Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn og formaður byggðaráðs, Sauðárkróki

11. Anna Lísa Hilmarsdóttir, bóndi, Sleggjulæk, Borgarfirði

12. Svanlaug Guðnadóttir, hjúkrunarfræðingur, Ísafirði

13. Klara Sveinbjörnsdóttir, nemi, Hvannatúni, Borgarfirði

14. Magnús Pétursson, bóndi, Miðhúsum A-Húnavatnssýslu

15. Gauti Geirsson, nemi, Ísafirði

16. Magdalena Sigurðardóttir, húsmóðir og fyrrv. varaþingmaður, Ísafirði

 

Fleiri fréttir