Framboðslisti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi

Starri Reynisson, Ingunn Rós Kristjánsdóttir, Bjarney Bjarnadóttir og Guðmundur Gunnarsson.
Starri Reynisson, Ingunn Rós Kristjánsdóttir, Bjarney Bjarnadóttir og Guðmundur Gunnarsson.

Viðreisn kynnir nú framboðslista sinn í Norðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar sem fara fram þann 25. september. Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, leiðir listann. Í 2. sæti er Bjarney Bjarnadóttir, kennari, Starri Reynisson, forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar, situr í 3. sæti listans og Ingunn Rós Kristjánsdóttir, sálfræðinemi, er í 4. sæti.

Guðmundur kveðst afar stoltur af því að leiða lista Viðreisnar í kjördæminu og hlakkar til kosningabaráttunnar næstu vikur og mánuði.
„Við teflum fram ungu og öflugu hugsjónafólki í bland við reynslubolta; fólki sem hefur ástríðu fyrir svæðinu og íbúum þess. Við erum staðráðin í að setja almannahagsmuni ofar sérhagsmunum og tala fyrir brýnum framfaramálum og tímabærum áherslubreytingum á þessu mest spennandi svæði landsins. Framtíðin er björt í Norðvesturkjördæmi og með þetta mannval mun Viðreisn sannarlega láta til sín taka. Við iðum í skinninu og munum verja næstu mánuðum í að ræða við okkar heimafólk, tala fyrir áherslumálum flokksins og hlusta. Þetta verður frábært kosningasumar,“ segir Guðmundur.

Notast er við svokallaða fléttulista á framboðslistum Viðreisnar þar sem hver frambjóðandi má ekki vera af sama kyni og sá sem skipar sætið á undan.

 

Framboðslisti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi:

  1. Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Bolungarvík
  2. Bjarney Bjarnadóttir, kennari. Borgarnes
  3. Starri Reynisson, forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Akranes
  4. Ingunn Rós Kristjánsdóttir, sálfræðinemi. Ísafjarðarbær

 

  1. Egill Örn Rafnsson, tónlistarmaður og nemi í skapandi greinum við Háskólann á Bifröst. Bifröst
  2. Edit Ómarsdóttir, verkefnastjóri Icelandic Startups. Akranes
  3. Pétur Magnússon, húsasmiður. Ísafjarðarbær
  4. Svandís Edda Halldórsdóttir, lögfræðingur. Akranes

 

  1. Alexander Aron Guðjónsson, rafvirki. Akranes
  2. Auður Helga Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Ísafjarðarbær
  3. Ragnar Már Ragnarsson, verkefnastjóri. Stykkishólmur
  4. Lee Ann Maginnis, kennari og lögfræðingur. Blönduós

 

  1. Magnús Ólafs Hansson, húsgagnasmíðameistari. Akranes
  2. Ragnheiður Jónasdóttir, forstöðumaður. Akranes
  3. Pétur G. Markan, fyrrv. sveitarstjóri og formaður Vestfjarðastofu. Samskiptastjóri. Hafnarfjörður
  4. Sigrún Camilla Halldórsdóttir, formaður Félags eldri borgara á Ísafirði. Ísafjarðarbær

/Fréttatiilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir