Framfarir í mælingum á mið-norðurlandi

Nýlega undirrituðu Stoð ehf. verkfræðistofa á Sauðárkróki og Ísmar ehf. samstarfssamning um uppsetningu og rekstur GPS leiðréttingastöðvar í Skagafirði. Leiðréttingarstöðin verður á landsvísu, hluti af VRS kerfi Ísmar, sem nú þegar hefur VRS-stöðvar í rekstri á Akureyri, Húsavík, Egilsstöðum, Höfn í Hornafirði, Ísafirði, Borgarnesi, Selfossi, Keflavík og Reykjavík.

Með tilkomu hins nýja búnaðar er brotið blað í mælingaraðferðum á svæðinu.

Í tilkynningu frá Stoð segir að mælingarmenn þurfi ekki lengur að stilla upp fastri stöð til að vinna út frá, heldur er hægt að hringja inn í VRS kerfi í gegn um GPRS gátt. Við það sparast mikill tími við uppsetningu ásamt ferðatíma að og frá föstu stöðinni til vinnusvæðis.

Til vinstri er Jón Tryggvi Helgason framkvæmdastjóri Ísmar ehf.
Eyjólfur Þórarinsson framkvæmdastjóri Stoð ehf. verkfræðistofu er til hægri á myndinni.

Í megin dráttum felst samstarfið í því, að verkfræðistofan fyrir hönd heimaaðila fjárfesti í búnaðnum og setti hann upp með aðstoð tæknimanns Ísmar; en Ísmar sér um rekstur á búnaðnum, áskriftarsamninga og aðgangsstýringu að gögnum.

Sjá nánar á heimasíðum samningsaðila:

Stoð ehf. verkfræðistofa        www.stodehf.is
Ísmar ehf.                               www.ismar.is

Fleiri fréttir