Framkvæmdarstjóri ráðinn við Þekkingarsetur
Þekkingarsetrið á Blönduósi hefur ráðið Katharinu Schneider í 50% starf sem framkvæmdastjóri setursins. Jafnframt hefur Gunnar Tryggvi Halldórsson verið ráðinn í 20% starf sem verkefnastjóri við setrið. Þetta kom fram á fundi bæjarstjórnar Blönduósbæjar þann 11. september sl.
Á fundi bæjarráðs kom einnig fram að til stendur að halda stefnumótunarfund varðandi Þekkingarsetrið í Blönduvirkjun þann 24. september nk. þar sem hagsmunaaðilar mæta og marka stefnuna. Menntamálaráðuneytið verður með fulltrúa á fundinum.
Markmið Þekkingarsetursins er að stuðla að fræðslu og rannsóknum á staðbundnum auðlindum í Húnavatnssýslum í samstarfi við heimamenn. Auk Blönduóssbæjar, Húnavatnshrepps og Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra standa ýmsar stofnanir og fyrirtæki að Þekkingarsetrinu. Setrið er til húsa í Kvennaskólanum á Blönduósi.