Framkvæmdarstjóri SAH Afurða hættir
Sigurður Jóhannesson framkvæmdastjóri SAH Afurða ehf. tilkynnti að hann hefði sagt upp störfum frá og með 1. maí næstkomandi á aðalfundi félagsins sem haldinn var í gær, 24. apríl.
Sigurður mun sinna störfum fyrir félagið áfram í samráði við stjórnarformann þangað til eftirmaður hans verður fundinn og aðstoða við að koma honum inn í störf og verkefni eftir bestu getu, samkvæmt heimasíðu SAH Afurða.
Framkvæmdastjóri þakkaði starfsmönnum og eigendum félagsins fyrir gefandi og árangursríkt samstarf undanfarin 13 ár og óskaði félaginu alls hins besta á komandi árum.