Framkvæmdir sumarsins við Kvennaskólann á Blönduósi

Framkvæmdir stóðu yfir í sumar við lóð Kvennaskólans á Blönduósi og var kostnaðurinn við þær 18,4 m.kr. Þetta kom fram á fundi Byggðasamlags um menningu og atvinnumál í A-Hún. sem fór fram á dögunum.

Í fundargerð segir að Ágúst Þór Bragason, yfirmaður tæknideildar Blönduósbæjar, hafi kynnt stöðu lóðaframkvæmda við Kvennaskólann í sumar á fundinum. Hann kynnti helstu frávik framkvæmdarinnar en helstu frávikin frá upphaflegu kostnaðaráætlun sem var kr. 15,4 m.kr. var endurnýjun á fráveitu .

Samþykkt var á fundinum að leita til Mennta-og menningarmálaráðuneytisins um frekari aðkomu ráðuneytis að fjármögnun verkefnisins.

Fleiri fréttir