Framkvæmdir við Fellsborg á Skagaströnd
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
07.04.2014
kl. 09.50
Á síðasta fundi sveitarstjórn Skagastrandar voru samþykktar framkvæmdir við félagsheimilið Fellsborg á Skagaströnd. Samkvæmt kostnaðaráætlun er í heild gert ráð fyrir að breytingar og endurbætur í heild muni kosta 19,2 milljónir.
Fyrir fundinum lágu uppdrættir og kostnaðaráætlun vegna breytinga á snyrtingum í kjallara og á 1. hæð, ásamt flísalögn á stiga og fleira sem Form – arkitektar höfðu unnið. Sveitarstjórn yfirfór öll fyrirliggjandi gögn og samþykkti að hefja framkvæmdir samkvæmt þeim.
Í sjóðstreymi fjárhagsáætlunar er gert ráð fyrir að fjárfesting í Fellsborg geti numið allt að 22 milljónum og því var framkvæmdin innan marka áætlunar.