Framlög til Hólaskóla koma rektor ekki á óvart

„Við höldum ró okkar,“ segir Erla Björk Örnólfsdóttir rektor Háskólans á Hólum aðspurð um viðbrögð hennar við fjárlögum sem kynnt voru í síðustu viku. Hún segir að við þessu hafi mátt búast þar sem niðurskurðurinn sem nefndur er í fjárlögunum vegna skólans sé álíka hár og það tímabundna framlag sem hann hafi fengið árið áður.

„Við höfum séð það svartara en svo hefur úr ræst. Skólinn fékk 39 millj. kr. tímabundið framlag á síðasta ári og það mátti gera ráð fyrir að það hyrfi, það hefði hins vegar verið mjög jákvætt ef ríkisvaldið hefði hins vegar ákveðið að halda áfram að standa við bakið á skólanum“ segir Erla og bætir við að framlagið nú til skólans sé sambærilegt við þá fjárhæð sem upphaflega var áætluð á fjárlögum 2013.

Gamall skuldahali fylgir enn rekstri Háskólans á Hólum sem oft hefur verið reynt að ganga frá í gegnum árin og segir Erla Björk það allt annað mál og sérstakt úrlausnarverkefni. „Það er viðfangsefni sem væntanlega verður ráðist í, þegar aðstæður verða réttar.“

Fleiri fréttir