Framsókn stillir upp í NV-kjördæmi
Kjördæmisþing Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fór fram sl. laugardag að Reykjum í Hrútafirði. Samkvæmt frétt Skessuhornsins.is var eitt helsta málið sem lá fyrir þinginu að ákveða með hvaða hætti skuli standa að vali á framboðslista flokksins í komandi alþingiskosningum sem fram fara í apríl á næsta ári.
Þingið ákvað efna til uppstillingar að þessu sinni og sérstök kjörstjórn var valinn til að sjá um að stilla upp lista. Hún mun leggja tillögu að lista fyrir nýtt kjördæmisþing sem haldið verður laugardaginn 24. nóvember nk. og mun þá listi Framsóknarmanna í kjördæminu líta dagsins ljós.
Svava Halldóra Friðgeirsdóttir, fráfarandi formaður kjördæmisráðs flokksins í NV-kjördæmi, sagði í samtali við Skessuhornið að kjörstjórn muni auglýsa eftir framboðum á lista á næstu dögum.
Tveir hafa nú þegar gefið kost á sér á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, þingmennirnir Gunnar Bragi Sveinsson sem sækist eftir fyrsta sætinu og Ásmundur Einar Daðason sem sækist eftir öðru sætinu. Áður hafði Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson sóst eftir öðru sætinu en hann dró framboð sitt tilbaka á laugardag.