Frestað vegna fámennis
Aðalfundi Virkju-Norðvestur kvenna, sem boðaður hafði verið á Skagaströnd í gærkvöldi, var frestað vegna slakrar mætingar. Að sögn þeirra stjórnarkvenna sem mættu á fundinn hefur starfsemin verið með minnsta móti undanfarið ár, en vonir standa til að hægt verði að blása lífi í félagið á ný.
Haldnir voru þrír stjórnarfundir á starfsárinu 2012-2013. Fyrrum formaður, Helga Hinriksdóttir, flutti á Austurland á miðju ári og varaformaður forfallaðist í þrjá mánuði. Engir viðburðir voru haldnir á árinu og heimasíða félagsins hefur legið niðri vegna vírusárásar.
Allar konur á Norðurlandi vestra eru hvattar til að ganga til liðs við félagið, sem hefur það að markmiði að efla samstöðu og samstarf kvenna og efla félagskonur í stjórnunar-, rekstrar og félagsstörfum eða öðru, sem styrkt getur persónulega og faglega færni þeirra. Alls eru rúmlega fimmtíu konur í félaginu og eru þær, ásamt nýjum félögum, hvattar til að mæta á aðalfund að hausti þar sem ákvörðun verður tekin um framtíð félagsins.