Frestur til að sækja um í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra framlengdur!
Frestur til að skila umsóknum í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra hefur verið framlengdur til þriðjudagsins 28. október kl. 12:00.
Þetta kemur fram á vef ssnv þar sem segir jafnframt að sjóðurinn veiti styrki til fjölbreyttra verkefna á sviði menningar, nýsköpunar, atvinnuþróunar og samfélagslegra verkefna sem stuðla að jákvæðri þróun á Norðurlandi vestra. Umsóknum er skilað í gegnum rafrænt umsóknarkerfi hér.
Við hvetjum einstaklinga, félagasamtök, fyrirtæki og sveitarfélög á svæðinu til að nýta tækifærið og sækja um styrk til verkefna sem efla atvinnulíf, búsetu og samfélag í landshlutanum.
Nánari upplýsingar má finna HÉR.