Fréttabréf Húnavatnshrepps komið út
Nýtt fréttabréf er komið út hjá Húnavatnshreppi sem aðgengilegt er á vefsíðu hans, hunavatnshreppur.is. Þar er farið yfir liðið ár í tölum og gerðum og áætlanir á nýju ári reifaðar.
Í fréttabréfinu er sagt að að vegna mikillar tekjuskerðingar á árinu 2011 sé óhjákvæmilegt að lækka rekstrarkostnað verulega og hækka gjaldskrár. Standa verði vörð um grunnþjónustu sveitarfélagsins og um leið að vernda störfin eins og kostur er, þó verður ekki undan því vikist að lækka þarf launakostnað ef áætlaður sparnaður á að nást.
Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að námsstyrkir vegna tónlistarnáms á framhaldsskólastigi verði felldir niður. Styrkir til framhaldsskólanema lækka úr 55 þús. kr í 50 þúsund kr. per. önn.
Greiðslur vegna ristahliða í heimkeyrslur lögbýla verða felldar niður.
Árið 2010 greiddi sveitarfélagið 200 kr. á dag af hráefniskostnaði mötuneytis fyrir hvern nemanda í grunnskóla og leikskóla. Á árinu 2011 verður greiðsluþátttöku sveitarfélagsins í hráefniskostnaði mötuneytis grunnskóla og leikskóla hætt.
Gert er ráð fyrir að laun hreppsnefndar, annara nefnda, fjallskilastjóra og oddvita lækki um 10% frá fyrra ári
Gjald vegna gæslu á börnum starfsmanna Húnavallaskóla verður 1000 kr á barn á dag.
Notaðar verða viðmiðunarreglur Sambands ísl. Sveitarfélaga um greiðslur vegna leikskóladvalar barna utan lögheimilissveitarfélags. Sækja þarf sérstaklega um þessar greiðslur á skrifstofu sveitarfélagsins.
Sjá nánar HÉR
